Húsreglur

SKRÁNING

  • Allir sem nýta sér aðstöðu og þjónustu Bjargarinnar skulu fylla út þar til gerð skráningareyðublöð með starfsmanni.
  • Allir skulu skrá nafn sitt í gestabók við komu í Björgina.





OPNUNARTÍMI

  • Mánudaga – fimmtudaga frá kl. 8.15 – 15.30.
  • Föstudaga frá kl. 8.15 – 12.00.
  • Klukkan 15:15 skal hefja frágang, allir ganga frá eftir sig.
  • Klukkan 15:30 er Björginni lokað.



MÁNAÐARGJALD

  • Notendur sem nýta sér aðstöðu og sækja þjónustu í Björginni greiða 2.000 kr. mánaðargjald.
  • Gjaldið þarf að vera greitt ef taka á þátt í viðburðum í Björginni án undantekninga.



SÍMANOTKUN Í BJÖRGINNI OG TÓNLIST

  • Sími Bjargarinnar er ekki ætlaður til einkanota nema í neyðartilvikum.
  • Hringingar á einkasímum skulu vera lágar og fara skal afsíðis til að tala.
  • Ekki er heimilt að spila tónlist og myndbönd á símum, nema nota heyrnatól.
  • Ef verið er að hlusta á tónlist í tölvunni, þá skal nota heyrnatól nema það henti öllum í kring.

HREINLÆTI

  • Hreinlæti eykur vellíðan, gerð er krafa um persónulegt hreinlæti.



MYNDATÖKUR

  • Hver og einn gengur frá eftir sig.
  • Ekki er tekin ábyrgð á persónulegum munum. Óskilamunum er hent reglulega.
  • Eigur Bjargarinnar eru ekki til útláns.
  • Ekki er leyfilegt að geyma persónuleg gögn í tölvum.
  • Reykingar eru eingöngu leyfðar í og við reykkofa.
  • Ekki er leyfilegt að reykja upp við húsið.
  • Notkun rafretta er óheimil innandyra.
  • Ekki er leyfilegt að koma með dýr inn í Björgina eða á lóð Bjargarinnar.



UMGENGNI

  • Sími Bjargarinnar er ekki ætlaður til einkanota nema í neyðartilvikum.
  • Hringingar á einkasímum skulu vera lágar og fara skal afsíðis til að tala.
  • Ekki er heimilt að spila tónlist og myndbönd á símum, nema nota heyrnatól.
  • Ef verið er að hlusta á tónlist í tölvunni, þá skal nota heyrnatól nema það henti öllum í kring.



BÖRN

  • Almennt er Björgin ekki viðeigandi staður fyrir börn. Heimsóknir barna skulu vera í samráði við starfsmenn. Athugið sér viðmið í endurhæfingu varðandi komu barna í viðtöl.



NEYSLA ÁFENGIS OG VÍMUEFNA

  • Ekki er leyfilegt að vera undir áhrifum áfengis- eða vímuefna.
  • Ef vart verður við slíkt skal láta starfsmann vita.



PERSÓNULEGAR SKOÐANIR

  • Skoðanir á trúmálum og stjórnmálum skal hver og einn hafa fyrir sig.



ÞJÓFNAÐUR

  • Ef upp kemst um þjófnað skal það í öllum tilvikum tilkynnt til lögreglu.



EINKALÍF STARFSMANNA

  • ·Ekki er leyfilegt að hringja í einkasíma starfsmanna.
  • ·Ekki er leyfilegt að bæta starfsmönnum við sem vinum á samfélagsmiðlum, eins og Facebook, Snapchat, Instagram o.þ.h.


ÁBYRGÐ

  • ·Hver og einn ber ábyrgð á sinni framkomu.
  • Í Björginni ríkir trúnaður. Ekki skal ræða málefni annarra utan Bjargarinnar.