Um Björgina
Björgin er hlýlegt og öruggt rými þar sem fólk fær stuðning, ráðgjöf og tækifæri til að styrkja sig í daglegu lífi.

STARFSEMIN
Björgin – Geðræktarmiðstöð Suðurnesja er endurhæfingarúrræði og athvarf fyrir fólk með geðheilsuvanda. Allir eru velkomnir í Björgina en þjónustan er hugsuð fyrir einstaklinga sem geta mætt á eigin forsendum og sinnt viðveru sjálfstætt. Starfsfólk veitir frekari upplýsingar um leiðir og úrræði sem standa til boða, innan sem utan Bjargarinnar. Björgina má sækja á eigin forsendum eða með tilvísun.
MARKMIÐ BJARGARINNAR
Rjúfa félagslega einangrun
Efla sjálfstæði einstaklinga
DRAGA ÚR STOFNANA
INNLÖGNUM
AUKA ÞEKKINGU Á GEÐHEILBRIGÐISMÁLUM
ENdurhæfing og Samfélagsleg þátttaka
AUKIN ATVINNU
ÞÁTTTAKA

SAGA
Björgin hóf starfsemi 4. febrúar 2005 í húsnæði Sjálfsbjargar að Fitjabraut 6c sem samstarfsverkefni Reykjanesbæjar, svæðisskrifstofu málefna fatlaðra og Sjálfsbjargar á Suðurnesjum, með víðtækum samfélagslegum stuðningi fyrirtækja, félagasamtaka og einstaklinga. Árið 2008 bættust öll sveitarfélög á Suðurnesjum, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og Félags- og tryggingamálaráðuneytið í reksturinn og tveir starfsmenn voru ráðnir í full störf. Starfsemin óx hratt og flutti síðar í stærra húsnæði við Suðurgötu 12 og 15, sem gerði Björginni kleift að veita þjónustu enn betur fyrir fjölbreyttan hóp gesta.
ENDURHÆFING
Endurhæfing miðar að því að gefa einstaklingum tækifæri til að efla færni sína á ýmsum sviðum. Boðið er upp á námskeið, hópastarf, fræðslu og ráðgjöf þar sem lögð er áhersla á að auka þekkingu og vitund einstaklingsins á uppbyggilegum málefnum sem stuðla að bata hans. Allir sem eru í endurhæfingu í Björginni fá ráðgjafa sem heldur utan um þeirra endurhæfingu með þeim. Viðkomandi fær aðstoð við að sækja um endurhæfingarlífeyri hjá Tryggingastofnun ríkisins og gerð er endurhæfingaráætlun. Í endurhæfingaráætlun kemur fram í hverju endurhæfing viðkomandi mun felast en þar á meðal eru hópatímar tvisvar í viku, regluleg viðtöl hjá ráðgjafa og einhvers konar virkni yfir daginn. Gerð er krafa um 80% mætingu í endurhæfingu.
ATHVARF
Einstaklingar sem þess óska geta sótt Björgina án þess að taka markvisst þátt í dagskrá. Sú leið kallast athvarf og er þar helsta markmiðið að rjúfa félagslega einangrun. Félagsleg samvera er mikilvægasti þáttur athvarfsins og í raun grunnur að frekari endurhæfingu. Samveran á sér bæði stað innan Bjargarinnar og annars staðar úti í samfélaginu. Skipulagðar ferðir, samverustundir og húsfundir eru haldnir reglulega, auk ýmissa mismunandi viðburða. Í Björginni er lögð áhersla á að hver og einni skipti máli.
